Kolbeinsey mynduð úr lofti

3. nóvember, 2026

Landhelgisgæslan hefur undanfarin ár flogið reglulega yfir Kolbeinsey, sem er 74 kílómetra norður af Grímsey, til að fylgjast með niðurbroti eyjarinnar. Áhöfn eftirlitsflugvélarinnar TF-SIF flaug nýverið yfir eyna og tók af henni myndir. Af þeim að dæma virðist hafa hægt á niðurbrotinu á síðustu árum.

Fyrir um 15 árum var jafnvel óttast að Kolbeinsey yrði með öllu horfin árið 2020. Eyjan stendur þó enn upp úr sjó og minna virðist hafa gengið á hana að undanförnu en áður. Berggrunnur hennar er afar gljúpur og hafís vinnur mikið á henni þau ár sem hann nær að umlykja eyjuna.

Kolbeinsey gegndi mikilvægu hlutverki í deilum um landhelgi og landgrunnsréttindi. Árið 1989 steyptu áhöfn varðskipsins Óðins og starfsmenn Vita- og hafnamálastofnunar þyrlupall á eynni, en síðan hefur hún minnkað verulega. Landhelgisgæslan hefur reglulega fylgst með henni í gegnum árin en hún glataði að mestu mikilvægi sínu eftir að samið var um miðlínuna milli Íslands og Grænlands annars vegar og Íslands og Jan Mayen hins vegar. 

Landhelgisgæslan mun halda áfram að fylgjast með ástandi eyjarinnar en meðfylgjandi myndir sýna núverandi ásýnd Kolbeinseyjar. Jafnframt var flogið Hvalbak sem er 25 sjómílur undan Austurlandi og er einn af grunnlínuviðmiðunarstöðunum fyrir landhelgina. Hvalbakur hefur takmarkað látið á sjá í áranna rás.

Hvalbakur.

Fleiri Fréttir