Fjórar nýjar ratsjár efla eftirlit á hafinu

6. nóvember, 2026

Landhelgisgæsla Íslands vinnur að uppsetningu fjögurra ratsjáa sem munu efla eftirlit á hafsvæðum nærri landi og auka siglingaöryggi. Ratsjárnar nýtast meðal annars við landamæraeftirlit, eftirlit með fjarskiptaköplum og almenna löggæslu á hafinu.

Undanfarna mánuði hafa starfsmenn Landhelgisgæslunnar og verktakar á hennar vegum unnið að uppsetningu ratsjánna á Sauðanesi á Vestfjörðum, Stórhöfða í Vestmannaeyjum, Gunnólfsvíkurfjalli við Langanes og Borgarhafnarfjalli í nágrenni Hornafjarðar. Kaup á þeim eru styrkt af landamærasjóði Evrópusambandsins.

Upplýsingar frá ratsjánum berast til stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð og bæta yfirsýn yfir skipaumferð á svæðunum. Drægni þeirra er um 40–60 sjómílur, eða 74–111 kílómetrar, út á haf. Þá er hægt að nýta þær til að meta sjólag. Stöðvarnar eru jafnframt búnar myndavélum og AIS-móttökurum.

Uppsetningin hefur verið umfangsmikið verkefni. Á dögunum flutti varðskipið Freyja eina ratsjána frá Hafnarfirði til Vestmannaeyja. Þaðan var hún flutt landleiðina út á Stórhöfða og fest á undirstöður undir umsjón Jóns Gunnars Ingibergssonar, varðstjóra. Ratsjáin hefur nú verið tengd og upplýsingar frá henni berast til stjórnstöðvarinnar í Skógarhlíð.

Verið er að tengja ratsjána á Gunnólfsvíkurfjalli í þessari viku og á næstu dögum verður unnið að uppsetningu stöðvanna á Sauðanesi og Borgarhafnarfjalli.

Ratsjárnar eru af gerðinni Furuno og hugbúnaðurinn sem notaður er til að stjórna þeim og birta upplýsingar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar er frá Timezero. JEES arkitektar önnuðust hönnun ratsjárhúsanna.

Búnaðurinn var m.a. fluttur með varðskipinu Freyju.

Frá Freyju var ratsjáin flutt með vörubíl á Stórhöfða.

Frá framkvæmdum á Stórhöfða.

Frá Stórhöfða.

Fleiri Fréttir