

Marie-Gaëlle Robles, sendiherra Frakklands á Íslandi, heimsótti Landhelgisgæslu Íslands í morgun og kynnti sér starfsemi stofnunarinnar. Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs, og Auðunn F. Kristinsson, framkvæmdastjóri stefnumótunar, áætlana og þróunar, tóku á móti henni í Skógarhlíð.
Á fundinum var meðal annars rætt um gistiríkjastuðning við franska sjóherinn, en skip hans sigla reglulega á hafsvæðinu umhverfis Ísland og koma til íslenskra hafna, meðal annars til að leita vars. Jafnframt var fjallað um leit, björgun og sjúkraflutninga á Íslandi og í Norður-Atlantshafi.
Þá var rætt um franskan uppruna þyrluflota Landhelgisgæslunnar og náið samstarf stofnunarinnar við þyrluframleiðandann Airbus í Frakklandi. Landhelgisgæslan hefur um áratuga skeið haft Super Puma-þyrlur í þjónustu sinni og gegna þær lykilhlutverki í leitar- og björgunaraðgerðum og sjúkraflutningum.