

S.l. fimmtudag var útgáfa 12 af tilkynningum til sjófarenda send áskrifendum og birt á vef Landhelgisgæslu Íslands, sjá hér: Tts_12_2026_83-89_29102026.pdf.
Eins og vant er kennir ýmissa grasa.
Þar er tilkynnt um uppfærðan stað sendiloftnets NAVTEX þjónustunnar, í sjókorti númer 367.
Leiðréttingu á legu sæstrengs, landtökustað á Flateyri og tilfærslu á tákni fyrir sæstreng í sjókorti númer 414 í beinu framhaldi af þeirri leiðréttingu.
Nýjan stað á rannsóknardufli utan Ísafjarðardjúps. Umrætt dufl var áður tilkynnt í Tts númer 61/2026 en hefur verið fært til.
Tímabundin (T) tilkynning vegna bilunar í hafnarvita á Norðurfirði (á Ströndum) en samsvarandi siglingaviðvörun hefur verið í útlestri frá stjórnstöð.
Ljós á enda leiðigarðs Austurfjörutanga við Höfn á Hornafirði, ljóseinkenni QG. Sjónarlengd þess hefur minnkað í 5 sjómílur.
Þessa útgáfu, ásamt lista yfir gild sjókort og tilkynningar í þau og siglingaviðvaranir í gildi má finna hér: Tilkynningar til sjófarenda | Landhelgisgæsla Íslands.
Kortaskrá hefur einnig verið uppfærð og er aðgengileg hér: Kortaskra_IS_Catalogue_of_Charts_i_gildi.pdf.
Nú þegar dregur að áramótum er rétt að benda á að sjávarfallaalmanak 2027 fer fljótlega í sölu.
Upplýsingar um aðrar útgáfur má finna hér: Sjókort | Landhelgisgæsla Íslands.