Drengir léku sér með virka sprengjukúlu

Sprengjusérfræðingar gerðu sprengjukúlu óvirka við Seyðisfjörð

  • Img_0050

28.8.2018 Kl: 14:30

Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar voru kallaðir út í vikunni að beiðni Lögreglunnar á Austurlandi eftir að fjórir drengir á aldrinum 11-12 ára fundu torkennilegan hlut. Drengirnir voru þá að leik við Seyðisfjörð. Við nánari athugun lögreglu og sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar kom í ljós að um virka sprengjukúlu væri að ræða. Ákveðið var að hún yrði gerð óvirk og henni eytt. 

Drengirnir sem fundu sprengjukúluna brugðust rétt við þegar þeir gerðu foreldrum sínum viðvart um hinn torkennilega hlut. Þeir höfðu nokkru áður leikið sér með sprengjukúluna og kastað henni á milli sín. Mikil mildi þykir að hún hafi ekki sprungið í höndum drengjanna. 

Talið er að sprengjukúlan komi úr loftvarnabyssu breska olíuskipsins El Grillo sem liggur á botni Seyðisfjarðar. Ekki þarf að fjölyrða um hversu hættulegar slíkar sprengjur geta verið en hlutir frá seinni heimsstyrjöldinni finnast enn víðsvegar um landið. 

Landhelgisgæslan vill því brýna fyrir fólki að láta lögreglu eða Landhelgisgæsluna vita tafarlaust ef það finnur torkennilega hluti og snerta þá ekki. Ef vafi leikur á um hvort um sprengju sé að ræða er mikilvægt að sprengjusérfræðingar skeri úr um slíkt.

Img_0051Sprengjukúlan áður en hún var sprengd af sprengjusérfræðingum Landhelgisgæslunnar.