Flengur afhentur Landhelgisgæslunni

Hönnun flengs var unnin í samvinnu við Landhelgisgæsluna

  • 50104915_2253429221591820_8855850594414362624_o

17.1.2019 Kl: 15:19

Landhelgisgæslan fékk nýjan og glæsilegan léttbát fyrir varðskipið Tý afhentan í vikunni. Hann nefnist Flengur 850 og var smíðaður af Rafnari ehf. Flengur var hífður um borð í varðskipið Tý í gær og sómir sér afar vel um borð eins og sjá má.

Ljosmynd-4_1547738445674

Hönnun Flengs var unnin í samvinnu við Landhelgisgæsluna. Skrokklagið byggir á varðbátnum Óðni en hönnunin hefur það að leiðarljósi að bæta starfsskilyrði áhafna.

Árið 2017 auglýsti Ríkiskaup útboð vegna kaupa á léttbát fyrir varðskipið Tý. Ýmsir bátaframleiðendur tóku þátt í útboðinu. Þegar búið var að fara yfir öll tilboð sem bárust m.t.t. kostnaðar og þeirra skilyrða sem sett voru um eiginleika, sjóhæfni, tækjakost um borð o.s.frv. þótti tilboð Rafnar ehf. í 8,5 metra léttbát hagstæðast og mæta þeim skilyrðum best sem sett voru. Úr varð að gengið var til samninga við Rafnar ehf. um smíði á slíkum bát.

49669524_2253429278258481_3986265392023601152_oEinar Hansen og Haukur Alfreðsson.

Ljosmynd-1_1547738445621Flengur er glæsilegur léttbátur. 

Ljosmynd-3_1547738445626Flengur hífður um borð.

49897402_2253429228258486_6518265985881866240_oSkrokklagið byggir á varðbátnum Óðni en hönnunin hefur það að leiðarljósi að bæta starfsskilyrði áhafna.