

Northern Challenge, árleg æfing sprengjusérfræðinga Atlantshafsbandalagsins, er hafin. Um 300 þátttakendur frá nítján þjóðum taka þátt í æfingunni að þessu sinni en hún er nú haldin í tuttugasta og fimmta sinn hér á landi. Séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar annast skipulagningu æfingarinnar sem stendur til loka næstu viku.
Æfingin fer að mestu fram innan öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli en einnig við hafnir á Suðurnesjum. Vegfarendur geta því átt von á að sjá sprengjusérfræðinga og búnað þeirra á þessum stöðum meðan á æfingunni stendur.
Markmið Northern Challenge er að æfa og samhæfa viðbrögð sprengjusérfræðinga við atvikum sem kunna að koma upp, meðal annars vegna hryðjuverka. Verkefnin taka mið af þeim ógnum sem fyrir hendi eru í heiminum í dag. Meðal annars er líkt eftir sprengjum sem fundist hafa víða um heim og þurfa þátttakendur að leysa verkefni sem snúa að meðhöndlun þeirra og aftengingu.
Fulltrúar bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, taka einnig þátt í æfingunni og miðla reynslu sinni af meðhöndlun sönnunargagna.
Sprengjusérfræðingar þátttökuþjóðanna hafa hlotið sömu grunnþjálfun og starfa eftir sömu verklagsreglum. Æfingin veitir þeim mikilvægt tækifæri til að þjálfa samstarf, samhæfa aðgerðir og miðla reynslu og þekkingu milli liða.
Northern Challenge hefur á undanförnum árum skipað sér sess sem ein mikilvægasta æfing sprengjusérfræðinga innan Atlantshafsbandalagsins og nýtur mikillar virðingar meðal bandalagsþjóðanna.