
100 ára afmæli Landhelgisgæslunnar fagnað í Hörpu
28. september 2026
Landhelgisgæslan fagnaði 100 ára afmæli sínu um helgina. Hátíðardagskráin hófst með því að þyrlu Landhelgisgæslunnar var...

Mikilvægt er að sjófarendur séu meðvitaðir um legu hafíssins sem er nú 12 sjómílur frá Horni þar sem hann er næstur landi. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst gervitunglamynd laust eftir miðnætti sem tekin var klukkan 19:08 í gærkvöldi. Hún sýnir ísröndina fyrir norðan land. TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, fer í annan ískönnunarleiðangur síðar í dag.
Landhelgisgæslunni bárust þessar myndir frá skipi sem statt er við jaðarinn á Strandagrunni norðaustur af Hornbjargi.



