Mannlaus dróni tekinn í notkun á Íslandi

Loftfarið hefur reynst vel

  • Droni1

3.5.2019 

Landhelgisgæslan hefur fengið mannlaust loftfar til notkunar sem gert er út frá Egilsstaðaflugvelli. Um er að ræða samstarfsverkefni EMSA, Siglingaöryggisstofnunar Evrópu, og Landhelgisgæslunnar en loftfarið verður hér á landi í þrjá mánuði. Á tímabilinu verður dróninn prófaður við löggæslu, leit- og björgun og mengunareftirlit á hafinu umhverfis Ísland. EMSA er þjónustuaðili drónans og þetta er í fyrsta sinn sem stofnunin útvegar dróna af þessari stærð til notkunar. Loftfarið er af gerðinni Hermes 900 og er rúmt tonn að þyngd. Það hefur 800 kílómetra drægi og getur því auðveldlega flogið að lögsögumörkum Íslands fyrir austan landið og til baka. Dróninn kemst á um 120 kílómetra hraða, hefur afísingarbúnað, er stjórnað í gegnum gervitungl, þarf flugbraut til að taka á loft og er með fimmtán metra vænghaf. Þá er hann búinn myndavélum, ratsjá og í honum er einnig sérstakur búnaður sem greinir neyðarboð og sendir þau áfram í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar. Fjölmenn áhöfn fylgir loftfarinu sem er stýrt af flugmönnum. Meginhluti verkefnisins er fjármagnaður af EMSA.

Undirbúningur hefur staðið yfir rúmt ár en Landhelgisgæslan óskaði formlega eftir þjónustunni í lok árs 2017. Loftfarið þarf að standast umfangsmiklar öryggiskröfur en Landhelgisgæslan hefur átt í góðu samstarfi við Samgöngustofu, Fiskistofu, Isavia, Póst og fjarskiptastofnun auk Fljótsdalshéraðs.

Þann 17. apríl fór dróninn í sitt fyrsta flug hér á landi og hefur síðan þá verið prófaður við austanvert landið. Myndavélin um borð er góð við eftirlit á fiskibátum og farþegabátum. Ratsjá hefur enn ekki verið sett í drónann en von er á henni á næstunni. Gert er ráð fyrir að verkefninu ljúki í lok júlí.

Droni3Dróninn er staðsettur á Egilsstöðum.