Þór nýttur sem aflstöð fyrir Dalvík

Þetta verður í fyrsta sinn sem varðskipið Þór er nýtt sem hreyfanleg aflstöð.

  • Image00001

12.12.2019 Kl: 17:13

Varðskipið Þór er í höfn á Dalvík þar sem til stendur að nýta skipið sem rafstöð fyrir bæinn. Tæknimenn eru að störfum í varðskipinu sem vinna að því að koma rafmagninu í land. Þá var rafstrengur sendur með Hercules flugvél danska flughersins síðdegis. Þetta verður í fyrsta sinn sem varðskipið Þór er nýtt sem hreyfanleg aflstöð. Þór getur flutt 2MW af rafmagni í land en það er nóg til þess að halda meðalstóru sveitarfélagi gangandi í neyðartilvikum.

Við hönnun skipsins var horft til þess að mögulegt yrði að senda rafmagn í land á afskekktum stöðum vegna rafmagnsleysis. Til þessa hafa rafmagnsdreifingaraðilar og veitufyrirtæki ekki talið unnt að tengjast skipinu fyrr en nú. Sérfræðingur skipatæknisviðs Landhelgisgæslunnar er kominn til Dalvíkur þar sem hann aðstoðar við tenginguna.

IMG_3303