Köstuðu gullpeningi í sjóinn úr TF-GNA

75 ár liðin frá því að varðskipið Alexander Hamilton varð fyrir árás þýsks kafbáts

Í gær var þess minnst að 75 ár eru liðin frá því að bandaríska varðskipið USCGC Alexander Hamilton WPG-34 varð fyrir tundurskeyti þýsks kafbáts skammt vestur af Garðskaga. Af því tilefni kom hingað til lands Dave Downey, formaður samtakanna „Families of the Alexander Hamilton, og systursonur eins úr áhöfninni. Downey, ásamt nokkrum þeirra sem á sínum tíma stóðu fyrir köfunarleiðangri í skipið og afkomendur íslenskra sjómanna sem björguðu eftirlifendum, komu saman í gær við Garðskagavita. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNA, lenti við vitann og flaug svo með Downey að staðnum þar sem Alexander Hamilton var þegar árásin var gerð. Þar kastaði Downey áletruðum gullpeningi í sjóinn. Þá var klukkan 13.12 en nákvæmlega á þeim tíma hæfði tundurskeytið skipið.

Árásin á Alexander Hamilton var söguleg því þetta var fyrsta bandaríska varðskipið sem varð fyrir árás Þjóðverja eftir að þeir lýstu yfir stríði á hendur Bandaríkjunum í framhaldi af skyndiárás Japana á Pearl Harbor í desember 1941. 26 skipverjar fórust, þar af dóu tuttugu samstundis þegar tundurskeytið hæfði vélarrúm skipsins. Aðrir úr áhöfn komust í björgunarbáta og björgunarfleka en einhverjir lentu í sjónum.  Sjómenn af íslenskum fiskibátum björguðu tugum skipverja.


Alexander Hamilton rak síðan norður Faxaflóann og næstu áratugina var lítið vitað um afdrif skipsins. Sumarið 2009 dró hins vegar til tíðinda þegar flugvélin TF-SIF fór í sitt fyrsta eftirlitsflug. Áhöfnin varð vör við olíuflekk í norðanverðum Faxaflóa sem ákveðið var að kanna nánar með nákvæmum mælitækjum. Um leið voru sögulegar heimildir kannaðar, meðal annars skjöl úr síðari heimsstyrjöld sem lengst af höfðu verið leynileg. Niðurstöður þeirrar rannsóknar bentu eindregið til þess að um Alexander Hamilton væri að ræða. Skipið hafði rekið norður Faxaflóa, því síðan hvolft og að lokum sökkti bandarískur tundurspillir sökkti því þar sem það var hættulegt sjófarendur. 


Fyrir 25 árum komu eftirlifendur ásamt fjölskyldum og afkomendum til Íslands til að minnast þess að fimmtíu ár voru þá liðin frá þessum voveiflega atburði. Við minningarathöfn sem þá var haldin um borð í varðskipi undan Garðaskaga var blómsveigum varpað í sjóinn þar sem talið var að skipið hafi verið þegar að tundurskeytið hæfði það. Einnig var settur upp minningarskjöldur á nýja vitann á Garðskaga. Fyrr í vetur var settur upp annar minningarskjöldur á vitann með nöfnum þeirra sem fórust. Fyrir nokkrum árum komu kafarar fyrir skildi við sjálft flakið þar sem það liggur á 90-100 metra dýpi.  

Nú er einungis einn af þeim skipverjum sem komust af enn á lífi. Hann er orðinn 96 ára.