

Um 25 nemendur hófu nýverið þátttöku í nýju leiðtoganámi í hafgæslu, sem er samstarfsverkefni Landhelgisgæslu Íslands, Háskólans á Bifröst og Tækniskólans. Fyrsta námslotu lauk á dögunum og hefur fjölbreyttur nemendahópur skapað öflugt lærdómssamfélag og líflegar umræður.
Í þessari fyrstu lotu voru kennd námskeiðin Hafréttur, auðlindir og umhverfi og Teymisstjórnun og skilvirk hópavinna. Jafnframt komu nemendur saman í staðnámi í flugskýli Landhelgisgæslu Íslands þar sem fram fór verkefnavinna og umræður. Þá fengu nemendur enn fremur kynningu á starfi flugdeildar.
Næsta námskeið í leiðtoganáminu, Landhelgisgæslan, löggæsla og stjórnsýsla á hafi, hefst síðar í október. Þar munu nemendur fá innsýn í hlutverk Landhelgisgæslunnar og þau fjölbreyttu verkefni sem tengjast eftirliti, löggæslu og stjórnsýslu á hafsvæðum Íslands.

Frá námslotu á Reykjavíkurflugvelli.

Auðunn F. Kristinsson, framkvæmdastjóri áætlana greininga og þróunar, kynnti starfsemi Landhelgisgæslunnar.

Líflegar umræður sköpuðust.

Frá kynningu á flugdeild Landhelgisgæslunnar.