TF-SIF sinnti landamæragæslu á Miðjarðarhafi

16. október, 2026

Áhöfnin á TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslu Íslands, sinnti landamæragæslu á Miðjarðarhafi í september á vegum Frontex, landamærastofnunar Evrópu. Verkefnið heppnaðist afar vel og er mikilvægt framlag Íslands til gæslu ytri landamæra Evrópu.

Áhöfnin hélt til Spánar í byrjun september og hafði aðsetur í Málaga meðan á verkefninu stóð. TF-SIF kom aftur til Íslands þann 2. október að loknu verkefninu.

Þátttaka Landhelgisgæslunnar í landamæragæslu á vegum Frontex er eitt stærsta framlag Íslands til Schengen-samstarfsins. Með henni nýtast sérhæfður búnaður TF-SIF og þekking og reynsla áhafnarinnar við sameiginlega gæslu ytri landamæra Evrópu.

TF-SIF á flugvellinum á Málaga.

Vélin skoðuð að loknu flugi.

TF-SIF sinnti verkefninu í september.

TF-SIF á flugvellinum í Málaga.

Fleiri Fréttir