Landhelgisgæslan hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar

19. október, 2026

Landhelgisgæsla Íslands er meðal þeirra 163 fyrirtækja, sveitarfélaga og stofnana sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar á dögunum fyrir kynjajafnvægi í framkvæmdastjórnum.

Viðurkenningin er veitt þeim sem hafa náð því viðmiði að hlutfall hvors kyns í framkvæmdastjórn sé að minnsta kosti 40%. Markmið Jafnvægisvogarinnar er að ná 40/60 kynjajafnvægi í framkvæmdastjórnum íslenskra fyrirtækja. Fjöldi viðurkenningarhafa jókst um 27,3% milli ára.

Yfirskrift viðurkenningarhátíðarinnar í ár var „Losum um hnútinn“. Hún er jafnframt yfirskrift herferðar Jafnvægisvogarinnar sem hvetur stjórnendur, stjórnir og eigendur til að taka virka afstöðu með jafnrétti og fylgja henni eftir með ákvörðunum.

Fleiri Fréttir