
Fjórar nýjar ratsjár efla eftirlit á hafinu
6. nóvember 2026
Landhelgisgæsla Íslands vinnur að uppsetningu fjögurra ratsjáa sem munu efla eftirlit á hafsvæðum nærri landi og auka si...

Starfsfólk Landhelgisgæslu Íslands tók þátt í starfsgreinakynningu á Suðurnesjum á dögunum. Þar kynntu starfsmenn varnarmálasviðs og liðsmenn séraðgerðasveitar fjölbreytt störf stofnunarinnar og veittu nemendum innsýn í verkefni hennar.
Kynningin er ætluð nemendum í 8. – 10. bekk grunnskóla á Suðurnesjum. Markmiðið er að efla starfsfræðslu, víkka sjóndeildarhring nemenda og kynna þeim þau fjölbreyttu tækifæri sem standa til boða þegar kemur að framtíðarnámi og störfum.
Landhelgisgsæslunni gafst mikilvægt tækifæri til að kynna starfsemi stofnunarinnar fyrir ungu fólki og vekja áhuga þess á þeim fjölbreyttu störfum sem þar eru unnin.









