

Fulltrúar Landhelgisgæslu Íslands tóku á móti sendinefnd frá suður-kóresku strandgæslunni á dögunum sem kynnti sér starfsemi og verkefni stofnunarinnar. Fyrir sendinefndinni fór Kim Hangyu, yfirmaður viðbragða við mengun hafsins hjá strandgæslu Suður-Kóreu en hópurinn var staddur hér á landi m.a. vegna Arctic-Circle ráðstefnunnar.
Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar, tók á móti hópnum ásamt Viggó Sigurðssyni og Elvari Steini Þorvaldssyni, stýrimönnum á aðgerðasviði, og Fríðu Aðalgeirsdóttur, fjármálastjóra. Í höfuðstöðvum Landhelgisgæslunnar fékk sendinefndin kynningu á starfsemi stofnunarinnar og ræddi við fulltrúa hennar um verkefni og starfshætti.
Sendinefndin kynnti sér jafnframt starfsemi sjómælinga og séraðgerða- og sprengjueyðingarsveitar Landhelgisgæslunnar. Þá heimsótti hópurinn flugdeildina í flugskýli stofnunarinnar á Reykjavíkurflugvelli og fékk innsýn í starfsemi hennar.
Samstarf og samskipti strandgæslustofnana eru mikilvægur þáttur í miðlun þekkingar og reynslu á sviði öryggis á sjó og verndar hafsins. Heimsóknir sem þessar styrkja tengsl Landhelgisgæslu Íslands og suður-kóresku strandgæslunnar og skapa tækifæri til að læra af reynslu hvorrar annarrar við úrlausn fjölbreyttra verkefna.
Sem þakklætisvott fyrir móttökurnar færði sendinefndin starfsfólki Landhelgisgæslunnar suður-kóreskt góðgæti.

Kim Hangyu og Ásgrímur L. Ásgrímsson.

Jónas Þorvaldsson, yfirmaður séraðgerðasveitar, fræðir hópinn um starfsemi sveitarinnar.

Brugðið á leik að lokinni kynningum.
