
Áhöfnin á TF-GNA sótti slasaðan skipverja
18. maí 2026
Björgunarmiðstöðin Stavanger í Noregi hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð í gærmorgun og óskað...

Varðskipið Týr var komið að áströlsku skútunni sem óskað hafði aðstoðar vegna leka, rúmlega tíu í gærkvöldi. Varðskipsmenn fluttu tæpa 220 lítra af eldsneyti yfir til skútunnar og einnig könnuðu þeir skemmdir á henni.
Að lokinni eldsneytisgjöf og mati á skemmdum var ákveðið að skútan héldi til hafnar á Íslandi til viðgerðar en ekki var talin þörf á að varðskipið fylgdi skútunni. Skútan er í samfloti með annarri skútu sem mun fylgja henni til hafnar og eru þær væntanlegar seinnipartinn á morgun, fimmtudag.
Meðfylgjandi myndir af vettvangi tók áhöfnin á varðskipinu Tý.
![]() |
| Varðskipsmenn flytja eldsneyti yfir til skútunnar á léttbát varðskipsins. |
![]() |
| Alls voru fluttir tæpir 220 lítrar af eldsneyti yfir til skútunnar í 20 lítra brúsum. |