
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...

Umfangsmikil æfing í viðbragði almannavarna við flugslysi fór fram á Akureyrarflugvelli um helgina í samstarfi við Isavia. Áhöfnin á TF-GRO, þyrlu Landhelgisgæslunnar, tók þátt í æfingunni ásamt fjölda viðbragðsaðila.
Í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi Eysta kemur fram að mikið hafi reynt á alla viðbragðsaðila á æfingunni sem og neyðarstjórn flugvallar og slökkviliðs, slökkvilið Akureyrar, lögreglu, sjúkraflutninga, björgunarsveitir, heilbrigðisstarfsfólk HSN og SAk, Rauða krossinn og Landhelgisgæsluna.
Æfingar sem þessi eru mikilvægar viðbragðsaðilum þar sem áhersla er lögð á samhæfingu ólíkra aðila.
Þorgeir Baldursson náði þessum skemmtilegu myndum af áhöfninni og þyrlunni fyrir norðan á laugardag.

