

Björgunarmiðstöðin Stavanger í Noregi hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð í gærmorgun og óskaði eftir aðstoð þyrlusveitar vegna slyss sem varð um borð í norsku fiskiskipi sem var statt miðja vegu milli Íslands og Grænlands.
Eftir samtal við vakthafandi lækni þyrlusveitar var ákveðið að sækja manninn og koma honum undir læknishendur í Reykjavík. Tekin var ákvörðun um að mæta skipinu í um 170 sjómílna fjarlægð frá Reykjavík, vestur af Vestfjörðum. Eftir rúmlega klukkustundarlangt flug kom TF-GNA, þyrla Landhelgisgæslunnar á vettvang og ákveðið var að framkvæma hífingarnar fyrir framan brú skipsins.
Sigmaður og læknir sigu um borð í skipið og undirbjuggu skipverjann fyrir hífingu, sem gekk vel.
Þegar búið var að hífa hann um borð í þyrluna var flogið með hann á Reykjavíkurflugvöll og þaðan var hann fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann.