
Norður Víkingi lokið
4. september 2026
Varnaræfingunni Norður-Víkingur 2026 lauk í vikunni þar sem æfðar voru varnir Íslands með aðgerðum á sjó, landi og í lof...

Um kl. 05:00 í morgun barst Landhelgisgæslunni merki frá neyðarsendi seglskútu sem saknað hefur verið frá því í sumar milli Portúgal og Azoreyja. Staðsetning neyðarsendisins var skammt suðvestur af Grindavík og var þyrla Landhelgisgæslunnar send á vettvang. Um klukkan 06:00 fann áhöfn þyrlunnar neyðarsendinn upp í fjöru austur af Hópsnesi. Engin önnur merki um skútuna var að finna en skoðað verður með frekari athugun á svæðinu í birtingu.
|
| Skútan sem saknað hefur verið frá því í sumar. |