
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst í nótt beiðni um aðstoð frá rússnesku fiskiskipi vegna veiks skipverja um borð. Skipið var þá að veiðum um 230 sjómílur suðvestur af Reykjanestá. Áhöfninni var ráðlagt að hífa inn veiðarfæri og halda í átt til lands.
Í morgun var TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, kölluð út og flaug til móts við skipið. Þyrlan TF-SYN var til taks á Reykjavíkurflugvelli á meðan til öryggis. Sjúklingurinn var hífður um borð í þyrluna um 120 sjómílur suðvestur af Reykjanestá.
Þyrlan lenti við Landspítalann í Fossvogi laust fyrir klukkan hálftvö.