
Asísk túnfiskveiðiskip rétt utan við lögsögumörkin
14. september 2026
Áhöfnin á varðskipinu Þór hefur annaðist eftirlit á hafsvæðinu djúpt suður af landinu í síðustu dögum. Meðal annars var ...

2.10.2018 Kl: 9:00
Á dögunum æfði áhöfnin á TF-SYN lendingar á þyrlupalli með danska varðskipinu Vædderen á norðanverðum Faxaflóa. Æfingin gekk vonum framar og alls voru æfðar átta lendingar við góð skilyrði. Eins og meðfylgjandi myndir sýna glögglega eru þyrluáhafnir Gæslunnar þrautþjálfaðar.
TF-SYN undirbýr lendingu á Vædderen.
Æfingin fór fram á norðanverðum Faxaflóa.
Vélin lent.
Flugstjóri var Björn Brekkan Björnsson, Andri Jóhannesson var flugmaður, Guðmundur Ragnar Magnússon var stýrimaður og Óskar Óskarsson flugvirki.
Lendingar æfðar á Vædderen