

Áhafnir Landhelgisgæslunnar hafa í vikunni æft leit, björgun og uppgöngu í tengslum við varnaræfinguna Norður-Víking sem haldin er umhverfis landið um þessar mundir.
Varðskip Landhelgisgæslunnar, þyrlusveit, séraðgerðasveit og starfsfólk í stjórnstöðvum eru meðal þeirra sem tekið hafa þátt í æfingum vikunnar.
Í vikunni hefur verið lögð áhersla á leit og björgun auk þess sem uppganga í skip var æfð um borð í flutningaskipinu Helgafelli.
Meginmarkmið Norður-Víkings er að æfa varnir Íslands, þar með talið varnir mikilvægra innviða og sjóleiðanna umhverfis Ísland, auk leitar og björgunar, gistiríkjastuðnings og samhæfingar íslenskra stjórnvalda við herstjórnir Bandaríkjanna og Atlantshafsbandalagsins.
Norður-Víkingur er haldinn á Íslandi að jafnaði annað hvert ár.
Um 150–200 íslenskir þátttakendur koma að æfingunni að þessu sinni ásamt fjölþjóðlegum liðsafla frá Bandaríkjunum, Belgíu, Kanada, Danmörku, Finnlandi, Frakklandi, Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi auk Atlantshafsbandalagsins.
Meðfylgjandi myndir voru teknar á æfingum í vikunni.








