

Föstudaginn 28.ágúst s.l. var nýjasta útgáfa Tilkynninga til sjófarenda, send áskrifendum og birt á vef Landhelgisgæslu Íslands, sjá hér: Tts_10_2026_61-69_28082026.pdf
Í þessar útgáfu Tilkynninga til sjófarenda má finna:
Upplýsingar um útsetningu og stað á nýju rannsóknardufli utan Ísafjarðardjúps.
Tilkynnt um upptöku rannsóknardufla og breytinga því tengt. Vekjum athygli á að eitt af fimm neðansjávarduflum sem var tilkynnt utan Papagrunns er enn í sjó, hin fjögur hafa verið fjarlægð.
Tilfærsla, nýr staður, á botnlægum rannsóknartækjum utan Alviðru, en staðsetning þeirra er auðkennd með gulu dufli.
Síðan er tilkynnt um s.k. festardufl austan Staðarbergs í grennd við Grindavík. Þetta eru fimm dufl, sett upp með ákveðnum hætti til að þjónustuskip geti lagst við festar. Eigandi þeirra, en þetta eru dufl í einkarekstri, mun taka duflin upp yfir vetrartímann en botnfestingar og tengdur búnaður, verður geymdur á botninum á staðnum. Samhliða þessu hættir útlestur siglingaviðvörunar sama efnis.
Tilkynning um dýpkunarframkvæmdir innan hafnarsvæðis Ísafjarðarhafnar hafa verið í útlestri sem siglingaviðvörun. Nú hættir sá útlestur þar sem tilkynning um þessar framkvæmdir er sett út sem tímabundin (T) tilkynning í þessari útgáfu.
Að sama skapi er skerpt á upplýsingum varðandi framkvæmdir við bátahöfnin við Hafnarhólma á Borgarfirði eystri, með tímabundinni (T) tilkynningu.
Nokkrar af fyrri tímabundnum (T) tilkynningum eru felldar niður þar sem efni þeirra á ekki lengur við, verki lokið, breyting tilkynnt með nýrri tilkynningu eða áætlanir ekki gengið eftir.
Eins og kemur fram hér að ofan eru reglulegar breytingar gerðar á upplýsingum í sjókortum. Því minnum við sjófarendur og aðra hagsmunaaðila á mikilvægi þess að vera með uppfærð kort, hvort sem það er í pappír eða á rafrænu formi.
Upplýsingar um ofangreindar tilkynningar ásamt fyrri tilkynningum má finna hér: Tilkynningar til sjófarenda – Notices to mariners | Landhelgisgæsla Íslands
Upplýsingar um gild sjókort og tilkynningar í þau, má finna hér: Listi-yfir-Tts-med-efni-tilkynningar_IS-EN.pdf
Upplýsingar um siglingaviðvaranir í útlestri, má finna hér: Siglingaviðvaranir | Landhelgisgæsla Íslands