
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
13.12.2019 Kl: 11:36
TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, var nú á tólfta tímanum send
til leitar í Sölvadal. Þyrlan tók á loft frá Akureyrarflugvelli klukkan 11:16. Fjögurra
manna áhöfn er um borð sem og björgunarsveitarmaður á vegum Slysavarnafélagsins
Landsbjargar. Áhöfn þyrlunnar kannar sömuleiðis aðstæður á svæðinu úr lofti ásamt
því að taka þátt í leitinni. TF-LIF hefur verið til taks á Akureyri undanfarinn
sólarhring.
Meðfylgjandi mynd er af TF-LIF í
flugskýli á Akureyrarflugvelli í morgun.