
Tilkynningar til sjófarenda, útgáfa 11 – 2026.
1. október 2026
S.l. þriðjudag var nýjasta útgáfa Tilkynninga til sjófarenda, send áskrifendum og birt á vef Landhelgisgæslu Íslands, sj...

8.11.2021 Kl: 12:06
Tólf starfsmenn Landhelgisgæslunnar, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og Ríkislögreglustjóra voru í dag útskrifaðir sem björgunarkafarar við hátíðlega athöfn í Skógarhlíð. Kafararnir hafa að undanförnu sótt átta vikna námskeið undir leiðsögn fjögurra leiðbeinenda. Með því að standa sameiginlega að námskeiði sem þessu fá kafarar þessar ólíku stofnana sömu þjálfun sem skilar sér í samræmdu verklagi þegar mikið liggur við.Landhelgisgæslan óskar köfurunum innilega til hamingju með áfangann.
Hópurinn að lokinni útskrift.