

Fundi yfirmanna strandgæslna á Norður-Atlantshafi, North Atlantic Coast Guard Forum (NACGF), lauk í Reykjavík í dag. Við lok fundarins þakkaði Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, gestum fyrir komuna og samstarfið og afhenti fulltrúum norsku strandgæslunnar formennsku í samstarfsvettvanginum.
Landhelgisgæsla Íslands hefur farið með formennsku í samstarfinu, sem sameinar 16 strandgæslur á og við Norður-Atlantshaf. Á fundinum var meðal annars fjallað um öryggi, eftirlit, leit og björgun, áhrif nýrrar tækni á starfsemi strandgæslna og áherslur í áframhaldandi samstarfi.
Georg óskaði norsku fulltrúunum velfarnaðar við og þakkaði aðildarþjóðunum fyrir framlag þeirra og gott samstarf á formennskuári Íslands.

Fundurinn þótti vel heppnaður.

Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands.

Georg afhendir Norðmönnum formennsku í ráðinu.

Hluti af íslenska hópnum.
