Yfirmenn strandgæslna á Norður-Atlantshafi funda í Reykjavík

21. október, 2026

Fundur yfirmanna strandgæslna á Norður-Atlantshafi, North Atlantic Coast Guard Forum (NACGF), hófst í Reykjavík í gær. Á fundinum ræða fulltrúar þeirra 16 strandgæslna sem mynda samstarfsvettvanginn málefni tengd öryggi, eftirliti, leit og björgun á Norður-Atlantshafi. Landhelgisgæsla Íslands hefur farið með formennsku í samstarfinu undanfarið ár og er því gestgjafi fundarins að þessu sinni.

Auk aðildarþjóðanna 16 sækja fulltrúar frá Frontex, EMSA og EFCA einnig fundinn.

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, setti fundinn og bauð gesti velkomna til Reykjavíkur. Í ávarpi sínu lagði hann áherslu á mikilvægi þess að þjóðir á og við Norður-Atlantshaf kæmu saman til að miðla reynslu og ræða sameiginlegar áskoranir. Öryggismál, löggæsla, umhverfisvernd og björgun væru nátengd verkefni og því mikilvægt að horfa þvert á þessi málefnasvið í samstarfinu.

Þema íslensku formennskunnar er tækni og strandgæsla, breytt hlutverk og nýjar áskoranir. Á fundinum hefur meðal annars verið fjallað um áhrif nýrrar tækni á starfsemi strandgæslna, ómönnuð kerfi, gervigreind og miðlun upplýsinga.

Fundinum lýkur á morgun en þá taka Norðmenn við formennsku í ráðinu.

Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, býður gesti velkomna.

Auðunn F. Kristinsson, framkvæmdastjóri stefnumótunar áætlana og þróunar, flytur erindi.

Frá fundinum.

Fleiri Fréttir