
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
20.12.2021 kl: 20:00
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur undanfarinn sólarhring
sinnt þremur útköllum. Meðfylgjandi myndband sýnir þyrlu Landhelgisgæslunnar
taka á loft frá Reykjavíkurflugvelli í dag og við leit nærri Strandakirkju en í
dag leitaði áhöfnin á TF-GNA, þyrlu Landhelgisgæslunnar, að Almari Yngva
Garðarssyni, sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í gær.
Áhöfnin á eftirlitsflugvélinni
TF-SIF tók einnig þátt í leitinni. Í nótt sótti þyrlusveitin slasaðan sjómann á
grænlenskan togara djúpt vestur af landinu og í gærkvöld var ökumaður fólksbíls
fluttur á Landspítalann eftir umferðarslys á Snæfellsnesi.