
Norðmenn taka við formennsku í North Atlantic Coast Guard Forum
22. október 2026
Fundi yfirmanna strandgæslna á Norður-Atlantshafi, North Atlantic Coast Guard Forum (NACGF), lauk í Reykjavík í dag. Við...

28.5.2022 Kl: 15:06
Áhöfnin á TF-GRO, þyrlu Landhelgisgæslunnar, var kölluð út um hádegisbil í dag vegna franskrar ferðakonu sem féll fram af klettabrún á Heimaey. Konan féll um 15 metra og valt þar að auki aðra 15-20 metra niður snarbratta hlíð.
Björgunarsveitarfólk frá Vestmannaeyjum komst að konunni sjóleiðina og hlúði að henni þar til þyrla Landhelgisgæslunnar kom á vettvang. Sigmaður þyrlunnar seig niður til konunnar sem var hífð um borð í þyrluna og flutt á Landspítalann í Fossvogi.
