
Tilkynningar til sjófarenda, útgáfa 6 – 2026
28. maí 2026
Fyrr í dag, fimmtudaginn 28. maí voru Tilkynningar til sjófarenda, ásamt lista yfir leiðréttingar í sjókort, sendar áskr...
3.6.2022 Kl: 14:34
Allar þyrluáhafnir Landhelgisgæslunnar verða að gangast með reglulegu millibili undir svokallaða HUET-þjálfun og á það jafnt við um flugmenn, sigmenn, spilmenn og lækna. Markmiðið er að allir um borð séu undir það búnir að geta komist úr þyrlu sem þarf að lenda í sjó eða á vatni.
Þjálfun er bæði bókleg og verkleg. Í verklega þættinum kemur áhöfnin sér fyrir í þyrlulíkani sem er síðan slakað niður í sundlaug. Fyrst er þetta gert rólega, svo er hraðinn aukinn, því næst er líkaninu velt og í síðustu ferðinni er æfingin gerð í svartamyrkri. Allt er þetta gert til að líkja eftir sem raunverulegustum aðstæðum.
Í vikunni hafa þessar æfingar farið fram í Rotterdam í Hollandi.