Flugmenn Landhelgisgæslunnar þurfa reglulega að gangast undir þjálfun í flughermi í Frakklandi.
28.6.2022 Kl: 13:17
Flugmenn Landhelgisgæslunnar þurfa reglulega að gangast undir ýmiskonar þjálfun. Hluti af henni er þjálfun í sérstökum flughermi í Frakklandi. Slíkt er nauðsynlegt til að uppfylla strangar flugöryggiskröfur. Hver flugmaður þarf að lágmarki að fljúga 200 heildarflugstundir á ári, 180 í þyrlu og um 20 í flughermi til að viðhalda hæfni sinni til að sinna leitar- og björgunarflugi.
Nýlega voru flugmennirnir Andri Jóhannesson, Lárus Helgi Kristjánsson og Björn Brekkan Björnsson staddir í Frakklandi þar sem þeir gengust undir þjálfun í flughermi.Lárus Helgi Kristjánsson í flughermi.
Björn Brekkan Björnsson og Lárus Helgi Kristjánsson.
Andri Jóhannesson og Lárus Helgi Kristjánsson.