
Finnsk sendinefnd kynnti sér starfsemi Landhelgisgæslunnar
17. september 2026
Í vikunni tók starfsfólk Landhelgisgæslunnar á móti fulltrúum finnskra fyrirtækja og finnska sendiráðsins á Íslandi. Til...
25.10.2022 Kl: 13:38
Varðskipið Þór kom með flutningaskipið EF AVA til Reykjavíkur um klukkan 9 í morgun. Dráttarbátar Faxaflóahafna drógu skipið síðasta spölinn til hafnar.
Flutningaskipið varð vélarvana í kjölfar sprengingar í vélarúmi þess á öðrum tímanum í gær. Varðskipið Þór var komið að skipinu um kvöldmatarleytið í gær og áhöfn Þórs skaut taug á milli skipanna og tók flutningaskipið í tog að því búnu.Á meðfylgjandi myndbandi má sjá hvernig aðgerðir fóru fram um borð í varðskipinu.
Myndir: Sævar Már Magnússon og Árni Sæberg.