
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...

26.1.2024 Kl: 13:57
Sex ára dóttir eins þyrluflugstjórans okkar stóð frammi fyrir erfiðu vali í gær.
Í skólanum var bangsastund og hún þurfti að velja á milli bangsanna Manna og Lóu um hvort þeirra fengi að fara með henni. Hún gat ómögulega gert upp á milli þeirra .
Úr varð að Manni fór með henni í skólann og Lóa með pabba hennar í þyrluna.
Lóa aðstoðaði við eftirlit um landið og miðin og fékk að fylgjast með ansi viðburðaríkum degi um borð í þyrlunni.
Haukur Harðarsson, flugmaður, Lóa og Þórarinn Ingi Ingason, flugstjóri.
Lóa fylgist með.
Þórarinn Ingi Ingason og Lóa.
Lóa fór með í vinnuna.