Jónas fær riddarakross fyrir framlag sitt til
friðargæslustarfa og öryggismála.
2.1.2025 Kl: 11:18
Jónas Karl Þorvaldsson, yfirmaður séraðgerðasveitar Landhelgisgæslunnar,
var í gær sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á
Bessastöðum. Jónas fékk riddarakross fyrir framlag sitt til
friðargæslustarfa og öryggismála.
Alls hlutu fjórtán einstaklingar fálkaorðuna að þessu sinni og
óskar Landhelgisgæslan þeim öllum til hamingju.
Ljósmynd: Eyþór Árnason.