
Asísk túnfiskveiðiskip rétt utan við lögsögumörkin
14. september 2026
Áhöfnin á varðskipinu Þór hefur annaðist eftirlit á djúpt suður af landinu í síðustu dögum. Meðal annars var fylgst með ...

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og áhafnir varðskipanna halda reglulega sameiginlegar æfingar til að stilla saman strengi sína. Í morgun fór þyrluæfing fram með áhöfninni á Þór sem var við eftirlitsstörf norðvestur af Geirfuglaskeri.
Um þessar mundir stendur yfir þjálfun á tveimur nýjum sigmönnum í þyrlusveitinni sem þurfa að gangast undir umfangsmikla grunnþjálfun.

Æfingin með Þór gekk vel og að henni lokinni var æft við Þrídranga og sigmönnum slakað þar niður og ástand vitans kannað. Eftir tæplega tveggja tíma æfingu var hífingum lokið og þyrlan hélt þá aftur til Reykjavíkur.