
Norðmenn taka við formennsku í North Atlantic Coast Guard Forum
22. október 2026
Fundi yfirmanna strandgæslna á Norður-Atlantshafi, North Atlantic Coast Guard Forum (NACGF), lauk í Reykjavík í dag. Við...

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á mesta forgangi auk sjóbjörgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar á þriðja tímanum í dag vegna leka sem kom upp um borð í fiskibáti sem staddur var vestur af Akranesi.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar ræsti þegar í stað út viðbragðsaðila auk þess sem skip í grenndinni voru beðin um að halda á vettvang. Tveir voru um borð í bátnum. Björgunarskip Landsbjargar á Akranesi var komið fljótt á staðinn og vel gekk að koma í veg fyrir lekann.
Taug var komið fyrir á milli fiskiskipsins og björgunarskipsins sem dregur nú bátinn til hafnar. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þá afturkölluð.