

Fulltrúar Landhelgisgæslu Íslands tóku í síðustu viku þátt í ársfundi European Coast Guard Functions Forum (ECGFF) sem haldinn var í Catania á Sikiley. Fundinn sóttu Auðunn F. Kristinsson, Klara Bjartmarz og Anna Finnbogadóttir fyrir hönd Landhelgisgæslunnar.
Á ráðstefnunni var fjallað um þróun verkefna strandgæslustofnana í Evrópu, auknar áskoranir í öryggismálum á hafinu og mikilvægi alþjóðlegs samstarfs á tímum vaxandi geopólitískrar óvissu. Sérstök áhersla var lögð á samhæfingu aðgerða, upplýsingamiðlun og nýtingu nýrrar tækni.
Samhliða ráðstefnunni fór fram fjölþjóðlega æfingin COASTEX 2026, þar sem reyndi á samstarf og samhæfingu stofnana sem sinna meðal annars leit og björgun, fiskveiðieftirliti, mengunarvörnum og siglingaöryggi.
Samstarf evrópskra strandgæslustofnana hefur þróast mikið á undanförnum árum, meðal annars fyrir tilstilli Frontex, Siglingaöryggisstofnunar Evrópu (EMSA) og Fiskveiðieftirlitsstofnunar Evrópu (EFCA). Landhelgisgæslan hefur tekið virkan þátt í þessu samstarfi, meðal annars með þátttöku í Frontex-verkefnum á Miðjarðarhafi og undan ströndum Afríku undanfarin 17 ár.
Ráðstefnan undirstrikaði mikilvægi þess að efla áfram samstarf, gagnkvæmt traust og samhæfingu evrópskra strandgæslustofnana. Í ljósi breyttrar öryggisstöðu og sífellt flóknari verkefna á hafinu er slíkt samstarf mikilvægara en nokkru sinni fyrr.

Frá COASTEX 26.


Klara, Anna og Auðunn voru fulltrúar Landhelgisgæslunnar á ráðstefnunni.