Landhelgisgæslan vekur athygli á slæmri veðurspá

13. október, 2026

Landhelgisgæslan vekur athygli á mjög slæmri veðurspá á morgun og fram á aðfaranótt fimmtudags. Mjög djúp lægð nálgast landið og hefur Veðurstofan gefið út gular og appelsínugular viðvaranir. Stormviðvaranir eru í gildi á flestum spásvæðum til sjávar og vegna vindstyrks má búast við talsverðri og á sumum hafsvæðum mikilli ölduhæð. Þá er loftþrýstingur óvenju lágur og má því gera ráð fyrir að sjávarstaða geti orðið hærri en sjávarfallaspár gefa til kynna, og þar sem vindur og alda standa að landi gæti sjór mögulega flætt upp á bryggjur og gengið á land þar sem ströndin liggur lágt.

Landhelgisgæslan hvetur því til aðgæslu við sjávarsíðuna og að hugað verði að skipum og bátum þar sem súgur getur myndast í höfnum. Jafnframt hvetur Landhelgisgæslan sjófarendur til að fylgjast vel með sjóveðurspám og gæta varúðar.

Meðfylgjandi er spákort Veðurstofunnar fyrir land og mið sem gildir kl 1800 á morgun, miðvikudag.

Fleiri Fréttir