Tilkynningar til sjófarenda, útgáfa 6 – 2026

28. maí, 2026

Fyrr í dag, fimmtudaginn 28. maí voru Tilkynningar til sjófarenda, ásamt lista yfir leiðréttingar í sjókort, sendar áskrifendum og birtar á vef Landhelgisgæslu Íslands.

Þessar tilkynningar fjalla m.a. um lok á framkvæmdum í Akraneshöfn. 

Í framhaldinu hefur verið gefið út ný útgáfa af viðkomandi hafnarkorti, kort 364.

Vegna framkvæmda í Reykhólum hefur hafnarviti verið fjarlægður tímabundið.

Tilkynnt er um framkvæmdir innan hafnar á Skagaströnd og uppsetningu ljósdufla vegna grynninga innan hafnar á Dalvík.

Sett hafa verið út ný rannsóknardufl og búnaður í Patreksfirði sem og á suðurströndinni, undan Alviðru.

Eldra rannsóknardufl í Arnarfirði hefur verið fært til og er tilkynning þar um.

Vekjum athygli sjófarenda á að tákn í sjókortum fyrir rannsóknardufl hefur til þessa verið tákn um AIS eða Virtual-AIS merki. 

Það er að breytast m.a. á grundvelli alþjóðlegra reglna og samstarfs og hefur Fjarskiptastofa birt upplýsingar um þær breytingar, sjá hér: Samráð um innleiðingu á ákvörðun ECC/DEC/(22)02 – Afnám heimildar til AIS-merkinga á netabaujum

Fleiri Fréttir