Hálf öld frá lokum síðasta þorskastríðsins

1. júní, 2026

Í dag er liðin hálf öld frá því að Bretar viðurkenndu 200 sjómílna efnahagslögsögu Íslands með undirritun samkomulags í Osló. Í Morgunblaðinu daginn var fjallað um samninginn og litið á hann sem: ,,algjöran íslenzkan sigur, þar sem hann felur í sér að Bretar viðurkenna að þeir hafi ekki heimild til að veiða innan 200 sjómílna fiskveiðilögsögunnar við Ísland.“

Íslendingar færðu fiskveiðilögsöguna út í 200 sjómílur í október 1975 þegar ný reglugerð um fiskveiðilögsöguna tók gildi. Með breytingunni stækkaði lögsagan úr 216 þúsund ferkílómetrum í tæplega 760 þúsund ferkílómetra. Í ávarpi Geirs Hallgrímssonar, þáverandi forsætisráðherra, til þjóðarinnar við það tilefni sagði: ,, Lífsbjörg okkar er í veði og málstaður okkar svo sterkur, að sigur mun vinnast með fullum yfirráðum Íslendinga yfir fiskimiðunum.“

Samningurinn sem undirritaður var þann 1. júní 1976 fól í sér að 24 breskir togarar máttu veiða innan 200 sjómílna lögsögunnar til 1. desember sama ár og síðan ekki meir. Þar með lauk deilunum og átöktunum sem fylgt höfðu útfærslu fiskveiðilögsögunnar undanfarna áratugi.

Til er þekkt ljósmynd Jóns Páls Ásgeirssonar, stýrimanns, af Halldóri Nellett sem þá var háseti um borð í varðskipinu Baldri ganga frá togvíraklippunum þegar samningar höfðu tekist. Á dögunum endurgerðu þeir félagar myndina um borð í safnskipinu Óðni í tilefni tímamótanna.

Fleiri Fréttir