

Um helgina tók áhöfn varðskipsins Þórs á móti hópi þingmanna sem sóttu Ísland heim í tengslum við Arctic Circle-ráðstefnuna.
Í hópnum voru meðal annars sænska þingkonan Alexandra Anstrell og Eiríkur Björn Björgvinsson, þingmaður Viðreisnar og formaður þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál, og aðrir fulltrúar nefndarinnar.
Auðunn Kristinsson og Páll Geirdal, skipherra á Þór tóku á móti gestunum ásamt áhöfn skipsins og kynntu þeim starfsemi Landhelgisgæslu Íslands, verkefni varðskipsins og mikilvægt hlutverk stofnunarinnar á norðurslóðum.
Í heimsókninni sköpuðust áhugaverðar umræður um þróun mála á norðurslóðum, áskoranir sem fylgja aukinni umferð um svæðið og mikilvægi leitar og björgunar, viðbúnaðar og alþjóðlegrar samvinnu.
Heimsóknin heppnaðist afar og gott tækifæri skapaðist til að ræða mikilvægi samstarfs ríkja við að tryggja öryggi á norðurslóðum.
