10 fluttir með loftförum Landhelgisgæslunnar

Tvær þyrlur og eftirlitsflugvélin TF-SIF fluttu tíu slasaða á sjúkrahús í Reykjavík.

  • TF-SIF-a-hofn

3.1.2023 Kl: 21:35

Alls voru tíu fluttir með loftförum Landhelgisgæslunnar vegna tveggja umferðarslysa í dag.Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út á þriðja tímanum vegna umferðarslyss sem varð á Suðurlandsvegi við Öldulón. 

Þá var TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, sem var við eftirlit skammt frá einnig kölluð til að flytja slasaða frá Höfn í Hornafirði.

Sex slasaðir voru fluttir með þyrlunum tveimur til Reykjavíkur og fjórir með TF-SIF, þrír úr slysinu við Öldulón og einn úr öðru umferðarslysi sem varð skammt frá Höfn síðdegis í dag.

Hér má sjá TF-SIF á flugvellinum á Höfn í dag.
TF-SIF-a-hofn