Hugum að öryggismálum heimilisins.
11.2.2019 Kl: 13:17
112-dagurinn
er haldinn um allt land í dag og er sjónum að þessu sinni beint að öryggismálum
heimilisins. Aðstandendur dagsins fræða almenning um hvernig má draga úr hættu
á slysum og öðrum áföllum á heimilum og hvernig bregðast á við slíkum atvikum.
Þetta er gert meðal annars á samfélagsmiðlum og í 112-blaðinu sem fylgir
Fréttablaðinu í dag.
Stór
hluti símtala í neyðarnúmerið 112 á rætur að rekja til slysa og annarra áfalla
á heimilum fólks. Fólk verður alvarlega veikt heima eða slasast, börn komast í
lyf og önnur hættuleg efni, eldur kemur upp á heimilinu, þjófar láta greipar
sópa, svo nokkur dæmi séu nefnd. Í 112-blaðinu sem fylgir Fréttablaðinu í dag
er bent á fjölmargt sem unnt er að gera til að fyrirbyggja atvik af þessu tagi
og bregðast við þeim, til dæmis með því að læra skyndihjálp, efla fallvarnir og
auka eldvarnir og varnir gegn innbrotum.
Ávarp Katrínar
Jakobsdóttur forsætisráðherra
Í
tilefni dagsins efna Neyðarlínan og samstarfsaðilar 112-dagsins til móttöku í
Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð kl. 16 í dag með svohljóðandi dagskrá:
·
Ávarp:
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
·
Verðlaun
í Eldvarnagetrauninni 2018 afhent
·
Skyndihjálparmaður
Rauða krossins útnefndur
Samstarfsaðilar
112-dagsins
112-dagurinn
er samstarfsverkefni stofnana og félagasamtaka sem annast margvíslega
neyðarþjónustu, almannavarnir og barnavernd í landinu. Þau eru: 112,
Barnaverndarstofa, Embætti landlæknis, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Landhelgisgæslan,
Landspítalinn, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Mannvirkjastofnun,
Rauði krossinn, Ríkislögreglustjórinn, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins, Vegagerðin og samstarfsaðilar um allt land.
112
er samræmt neyðarnúmer Evrópu og er dagurinn haldinn víða um álfuna til að
minna á að aðeins þarf að kunna þetta einfalda númer til þess að fá aðstoð í
neyð. Markmiðið með 112-deginum er að kynna neyðarnúmerið 112 og starfsemi
aðilanna sem tengjast því, efla vitund fólks um mikilvægi þessarar starfsemi og
hvernig hún nýtist almenningi. Markmið dagsins er enn fremur að efla samstöðu
og samkennd þeirra sem starfa að forvörnum, björgun og almannavörnum og
undirstrika mikilvægi samstarfs þeirra og samhæfingar.