
Norðmenn taka við formennsku í North Atlantic Coast Guard Forum
22. október 2026
Fundi yfirmanna strandgæslna á Norður-Atlantshafi, North Atlantic Coast Guard Forum (NACGF), lauk í Reykjavík í dag. Við...

29.6.2022 Kl: 9:35
Um helgina tók áhöfnin varðskipinu Þór þátt árlega hreinsunarverkefni samtakanna Hreinni Hornstrandir.
Verkefnið hófst á föstudag þegar 28 vaskir sjálfboðaliðar fóru siglandi inn í Hrafnfjörð en þaðan lá leiðin yfir Skorarheiði og niður í Furufjörð.
Áhöfn varðskipsins hitti hópinn fyrir í Furufirði á laugardeginum og var þá hafist handa við að ferja ruslahrúgur, sem safnast höfðu, um borð í varðskipið. Samtökin Hreinni Hornstrandir buðu sjálfboðaliðum og áhöfn varðskipsins í grill á heimleiðinni.
Afraksturinn, 5,19 tonn af rusli var settur í land á Ísafirði, mest plast og netadræsur.
Ruslið var flutt um borð í varðskipið og þaðan í land.
Rúmlega fimm tonn af rusli safnaðist.