Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar á æfingu
12.1.2023 Kl: 11:21
Í janúar hafa verið góðar aðstæður til æfinga fyrir þyrlusveit Landhelgisgæslunnar. Hér má sjá Andra Jóhannesson, flugmann, og Daða Örn Heimisson, flugvirkja og spilmann, að störfum um borð í TF-GNA, þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Myndir: Birgir Steinar BirgissonAndri Jóhannesson, flugmaður, um borð í TF-GNA
Daði Örn Heimisson, flugvirki og spilmaður, um borð í TF-GNA.
Gísli Valur Arnarsson, sigmaður þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar, á fjallaæfingu.
TF-GNA, þyrla Landhelgisgæslunnar.