Aftur berst neyðarkall gegnum gervihnött, þyrla Landhelgisgæslunnar kemur ferðamanni til aðstoðar.

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst aftur í dag, sunnudag neyðarkall í gegnum gervihnött. Barst neyðarkallið klukkan 9:47 frá breskum neyðarsendi sem skráður var á einstakling. Eins og ávallt gerði stjórnstöð Landhelgisgæslunnar þá þegar lögreglu og landsstjórn björgunarsveita viðvart um málið. Einnig hafði stjórnstöð Landhelgisgæslunnar umsvifalaust samband við Björgunarmiðstöðina í Bretlandi til að afla frekari upplýsinga um sendinn. Kom þá í ljós að þótt sendirinn væri skráður í Bretlandi var hann í eigu þýskrar konu. Hins vegar var ekki vitað hvort margir væru í hættu eða hvers konar hættu.

Á sama tíma og neyðarkallið barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar var áhöfnin á TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar að undirbúa sig fyrir brottför í verkefni og var ákveðið að senda hana strax á vettvang. Einnig var ákveðið að senda aðra þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-SYN af stað og var læknir með um borð.

Rétt um hálfellefu tilkynnti landsstjórn björgunarsveita  að staðurinn væri að öllum líkindum í vaði úti í á fyrir norðan Þórisvatn í Stóraverskvísl. Þegar það lá fyrir var óttast um að jafnvel fleiri en einn væri í neyð og mögulega að bíll væri fastur í vaði.

Meðal þeirra upplýsinga sem bárust frá Björgunarmiðstöðinni í Bretlandi var símanúmer handhafa sendisins. Lögreglan náði sambandi við eigandann og kom þá í ljós að sendirinn væri nú í höndum sonar eigandans. Allt væri í lagi með hann en hann væri hins vegar fastur á eyri úti í á. Var þá ákveðið að snúa TF-SYN, þyrlu Landhelgisgæslunnar til baka en TF-LIF kom manninum til aðstoðar en hann hafði verið á göngu frá Ásbyrgi á leið yfir í Skóga. Var þyrlan komin á vettvang rúmlega ellefu og kom manninum á fast land.