Áhöfn Baldurs losaði dauðan hval sem festist í botnföstu tógi á Stakksfirði

Hræið var orðið uppblásið og gat valdið hættu fyrir sjófarendur því það var í miðri leið milli Njarðvíkur og Hafnarfjarðar.

  • 20230125_143350_resized

26.1.2023 Kl: 12:45

Áhöfn sjómælingaskipsins Baldurs losaði dauðan hval á Stakksfirði í gær sem flækst hafði í botnföstu tógi sem talið er líklegt að sé hluti af kræklingaræktunarbúnaði. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning um hvalinn fyrr í vikunni. 

Hræið var orðið uppblásið og gat valdið hættu fyrir sjófarendur því það var í miðri leið milli Njarðvíkur og Hafnarfjarðar. Siglingaleiðin á milli þessara hafna lá í gegnum þetta svæði en síðan var hluta af því úthlutað undir kræklingaeldi.

Áhöfn sjómælingaskipsins Baldurs var kölluð út og beðin um að halda á staðinn til að losa hvalinn og koma honum út fyrir Stakksfjörð. Áhöfninni gekk vel að losa hræið en í ljós kom að á svæðinu er búnaður, tóg og línur sem hvalir, selir og önnur sjávarspendýr geta hæglega fest í auk þess sem hætta er á að skip og bátar flæki búnaðinn í skrúfuna.

Búnaðurinn virtist ekki lengur vera í notkun. Þegar áhöfn Baldurs hafði lokið við að losa hvalinn var hann tekinn í tog og haldið með hann út fyrir sjávarfallastrauma og honum sleppt á rek um 15 sjómílum norðvestur af Garðskaga.

Hér má sjá myndband af aðgerðum áhafnarinnar:

Dauður hvalur losaður

Hvalurinn-losadur

20230125_140203_resized_1Áhöfn Baldurs losar hvalinn.

Baldur-a-siglingu-hvalur-i-bakgrunniSjómælingaskipið Baldur á siglingu. Í bakgrunni sést hvalurinn í togi.

Baldur-og-hvalurinn