Áhöfn Þórs og þyrlusveit komu skipverjar til bjargar

7. mars, 2022

Áhöfn Þórs sótti veikan skipverja sem síðar var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur.

7.3.2022 Kl: 22:01

Skipstjóri grænlensks fiskiskips sem var á veiðum djúpt
vestur af Ísafjarðardjúpi hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í
morgun og óskaði eftir aðstoð vegna veikinda eins skipverjans um borð.
Varðskipið Þór var í grenndinni og hélt þegar á staðinn. Sjúkraflutningamenn úr
áhöfn Þórs fóru frá varðskipinu á léttbát og sóttu sjúklinginn um borð í
fiskiskipið. 

Þyrla Landhelgisgæslunnar var sömuleiðis kölluð út og var hugað að
sjúklingnum um borð í varðskipinu þar til þyrlan kom og sótti manninn. Hann var
hífður um borð í þyrluna síðdegis í dag og flogið með hann til Reykjavíkur þar
sem honum var komið undir læknishendur. Um borð í varðskipum
Landhelgisgæslunnar eru að jafnaði tveir sjúkraflutningamenn sem gátu í þessu tilfelli
sinnt manninum þar til þyrlan kom á vettvang. 

Samvinna þyrlusveitar og áhafnar
varðskipsins Þórs gekk afar vel en þetta er í annað sinn á sólarhring sem bæði
varðskip og þyrla eru kölluð til aðstoðar á þessum slóðum.

Meðfylgjandi myndir sýna þegar áhöfn Þórs sótti manninn og
þegar hann var að lokum hífður frá Þór um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Myndband