Áhöfnin á Þór við eftirliti í Sæunnarsundi

28 sundkappar þreyttu sundið.

  • IMG_8096_1630412829201

31.8.2021 Kl: 12:24

Hið árlega Sæunnarsund í Önundarfirði fór fram um helgina og var áhöfnin á varðskipinu Þór þeim tuttugu og átta sundköppum sem þreyttu sundið til halds og trausts. Flestir sem tóku þátt náðu að synda frá Valþjófsdal til Flateyrar en það er sú leið sem kýrin Sæunn synti eftirminnilega í október árið 1987.

Tveir léttbátar varðskipsins Þórs voru til taks og við eftirlit auk báta frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg meðan sundkapparnir syntu yfir fjörðinn.

Kýrin Harpa varð þjóðþekkt þegar hún sleit sig lausa þegar leiða átti hana til slátrunar og synti yfir Önundarfjörð frá Flateyri, rúmlega tveggja kílómetra leið yfir í Valþjófsdal í októbermánuði árið 1987. Hún hlaut nafnið Sæunn í kjölfarið.

IMG_8087Áhöfnin á varðskipinu Þór sinnti eftirliti meðan á sundinu stóð.
240396053_638735707109524_2300460169052112249_nSæunnarsundið er árlegt.
SaeunnKýrin Sæunn varð þjóðþekkt eftir sundið fræga.
240081217_408959427525773_6241038878650008098_n28 þreyttu sundið að þessu sinni.